Ég var að fatta af hverju viðskiptafréttir eru svona leiðinlegar. Þær eru þannig skrifaðar að það er bara fyrir innvígða og innmúraða að skilja slíkar fréttir.
Á mánudag selur Grettir Sundi tæplega sex prósenta hlut í Straumi Burðarás fyrir eitthvað um 11. milljarða eins og fram kom á vef Viðskiptablaðsins.  OK,  Þá kom fram að eigendur Grettis voru Sund ehf með 49,05%, Landsbanki Íslans hf með 35,9% og Opera  Fjárfestingar með minna.  Sem sagt stærsti einstaki eigandinn að kaupa sex prósent af félaginu. Só far, só gúdd.
Þá seldi Landsbankinn hlut í Straumi Burðarás í dag, fimmtudag fyrir ca. 12 milljarða eins og aftur kemur fram á vef vb. Ekki er sagt hver kaupir. Í staðin kaupir Landsbankinn í TM fyrir skitna fjóra milljarða. (lesist það ekki Bjöggarnir selja í Bjöggunum og kaupa svo í Tryggingamiðstöðinni sem er í nánu samstarfi við Landsbankann?)
Um klukkutíma síðar er vb búin að komast að því að  Hansa ehf (í eigu Björgólfs Guðmundssonar) kaupir 33,6% hlut í Gretti fyrir um 6,3 milljarða.  Af hverjum er hann Björgólfur að kaupa? Jú hann er ekkert að fara langt yfir lækinn, hann kaupir þetta bara af Landsbankanum.)
Eigendur Grettis eins og ég minntist á áðan eru svona fyrirbæri eins og Ópera Fjárfestingar. En hver skildi nú eiga þær? Jú,  Hansa, sem var að kaupa í Gretti og hinn eigandinn er Novator, eða eins og þetta heitir fyrir okkur hinum; Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor. Hansa að kaupa í Gretti er því Bjöggarnir að kaupa í Bjöggunum.
En voru viðskiptin búin? Nei, Samson Global Holdings jók hlut sinn í Straumi úr 13,5% í 30,2% og hver skyldi nú eiga Samson.... Ah, Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor.
En í stað þess að segja okkur bara frá því að Bjöggarnir séu nú mögulega að styrkja stöðu sína í Straumi Buðrarás og komnir með tæplega 50% hlut, örugglega til að tryggja sig gegn því að svona menn eins og Magnús snúi aftur, krefist varaformennsku og hlýði svo ekki formanninum (Björgólfi Thor), eða þeir sem keyptu (Jón Ásgeir og kumpánar) séu nú ekki með neina uppsteyt, þá býður Mbl.is okkur upp á "Með fjárfestingu sinni í Straumi-Burðarási staðfestir Samson Global Holding trú sína á viðleitni félagsins til að eflast og styrkjast með aukinni starfsemi á alþjóðamörkuðum.
Þá fáum við einnig að vita, frá mbl. að Grettir og Blátjörn hafi veirð sameinuð undir nafni Grettis. Blátjörn hefur einhvern tíman fjárfest í TM, en annað veit ég ekki um félagið, né heldur kemur það fram í fréttinni. Ég reikna með að mögulega hafi Bjöggarnir og Sund átt einhvern hlut í því félagi.
Eruð þið ekki einhverju nær um hvernig viðskipti ganga fyrir sig? Nei? Ja hérna, ekki ég heldur.
Heyrði um það pískrað að Sigurður G. Guðjónsson væri aftur á leið upp á Lyngháls. Nei, hann er víst ekki á leið aftur á Stöð 2, heldur á hann að vera búinn að leigja kjallarann fyrir fjölmiðlarekstur sinn.
Kjallari Lynghálsins hentar ágætlega þar sem þar var áður útvarpssvið Norðurljósa og hefur  því fullbúin útvarpsstúdíó.
Þá á Oddi að vera búinn að fá nóg af Birtíng, eða því starfsfólki sem áður starfaði fyrir Fróða, og vill fá skrifstofupláss sitt aftur. Fyrrum Fróðafólkið mun því vera á leið upp á Lyngháls líka. Ef þetta gengur eftir mun Sigurður því vera komin heim og aldrei að vita nema hann taki Krókhálsinn yfir áður en langt um líður.
Sigmund hefur skemmt mörgum Íslendingnum í gegn um árin. Hann er orðin "stofnun" sem sést meðal annars í því að ríkið keypti teiknimyndasafnið hans og við bíðum enn eftir að Vestmanneyjabær sjái um að þær verði almenningi opinberaðar.
Sjálfsagt eru ekki margir sammála mér, en ég tel að "síðasti söludagur" Sigmunds hafi runnið upp fyrir nokkrum árum síðan, og það hefði verið klassi yfir því að hætta þegar hann varð "stofnanavæddur".  Teikningarnar hans verða bara smekklausari og smekklausari.
Ég tók eftir þessu í dag, en ef ég man rétt, þá hafa fyrirsagnirnar í skopmyndum Sigmunds undanfarna daga komið úr Fréttablaðinu, en ekki Mogganum. Ætli karlinn sé nokkuð hættur að fá Moggann?
Ætli það sé ekki örugglega búið að tryggja Ástþóri sæti í stjórninni?
Ég hef nokkrum sinnum lent í því að ókunnugt fólk hafi verið að spjalla um heima og geima á símalínunni minni. Þýðir það að það sé verið að hlera símann minn? Alveg örugglega samkvæmt þessu...
Annars heyrði ég fyrir rúmu ári að nýríka liðið á Íslandi hafi, að minnsta kosti þá, haft áhyggjur af því að það væri verið að hlera símana þeirra. Þar sem málin snúast um völd og peningar eru völd, er það út í bláinn fyrir þetta fólk að hafa áhyggjur?
Vonandi villist hún ekki blessunin hún Condoleezza Rice og lendir á Írlandi í staðin? Írarnir gætu orðið svolítið hissa þegar hún birtist.
(fyrir þá sem ekki sáu fréttir bauð Rice sendinefndina frá Írlandi... uh, Íslandi velkomna og hafði greinilega ekki mikið pælt í við hverja hún var að tala.)
Ég hef gaman af hugleiðingum Friðjóns R. Friðjónssonar. Ég veit hvar hann stendur í pólitík, þannig að það er ekkert það sem kemur mér á óvart, nema kannski hversu berorður hann stundum er, svona miðað við að hann er embættismaður í dómsmálaráðuneytinu. (Það er kannski einhver sem getur kært hann til Mannréttindadómstólsins í Brussel, eða Haag eða jafnvel Strasborg?) Friðjón hefur nú reyndar ekkert mikið verið að leyna skoðunum sínum og því kemur mér á óvart að það sé fyrst núna sem hann ætli að hætta því, svona fyrst hann hefur sagt upp störfum. Kannski þetta þýðir bara að hann ætlar að blogga oftar, sem er ekkert verra. Lofsyrði á dag um ráðherrann sinn ætti meira að segja að gera á vinnutíma, það kemur bara skapinu í lag.
Nú er greinilega prófkjörshasar komin á fullt og Friðjón er greinilega að styðja sinn vin Gulfreð, þegar hann segir;
Vinstri menn vita það líka og þess vegna hamast þeir gegn honum eins og naut í flagi, syndin er að sumir sjálfstæðismenn taka þátt í aðförinni. Þeir sem ekkert eiga nema metnaðinn vilja ryðja þeim út sem geta.
Sjálfstæðisflokkurinn yrði veikur og aumur flokkur ef hugsjónalausir og valdagírugir menn sem ekkert hafa fram að færa nema eigin metorðagirnd stæðu einir í stafni. Á því fleyi þigg ég ekki far.
Kjósendur hafa ekki alltaf séð í gegnum innihaldslausa potara fyrr en seint og um síðir.  Það má vera að Albertsgenið lifi enn í flokknum.
Er ég kannski eitthvað að misskilja vinskap þeirra?
Það eru alltaf einhverjar fréttir af "mögulegum hryðjuverkum". Auðvitað er það alltaf möguleiki að um raunverulega ógn sé að ræða, en oftast er það taugaveiklun á taugaveiklun ofan. Þetta er önnur frétt sem birtist í dag, um að tæma þurfti Heathrow vegna þess að maður fannst með "grunsamlega tösku". Ekkert fannst í töskunni, en loka þurfti Heathrow in fjóra klukkatíma. Ekki kæmi mér á óvart þó grunsamlegu hljóðin úr ruslagámi í nágrenni við Bandaríska sendiráðið í Osló komi frá hinum ógurhættulegu dýrum; rottum og kakkalökkum.
Hryðjuverkataugaveiklunin getur ekki bara verið komin frá blaðamönnum sem æsa upp svona smá fréttir. Hinn vestræni heimur er að fara á taugum. Og hvar endar það? ... jú, með skertum mannréttindum svo hægt sé að verja okkur gegn þessari hræðilegu ógn, sem er meira í huga okkar en raunveruleg. Ef "ógn" við líf og limi er það alvarleg að jafnmargir látist árlega og nú gera af völdum hryðjuverka í hinum vestrpæna heimi, ætti að minnsta kosti að vera búið að banna byssur, bíla og áfengi. Svo ég tali nú ekki um sígaretturnar.
Hættum að taka þátt í vitleysunni.
Þetta kemur mér svo á óvart. Að Ragnheiður Ríkharðsdóttir sé á leið í prófkjör! Hverjum hefði dottið þetta í hug fyrir örfáum dögum síðan.
Yfir þessu varð ég svo hissa að ég varð að leggja frá mér heklunálina. Er það þá þetta sem maður gerir þegar maður fær ekki að vera ráðherra? Það höfðu þó verið sögusagnir á reimi áður en tilkynningar birtust um að Sólveig, Guðmundur, Rannveig, Margrét og Jóhann myndu hætta á þingi.
En Sigríður Anna, fyrrum frú ráðherra í umhverfisráðuneytinu (þó ég muni nú ekki eftir neinu máli sem hún kom í gegn sem slíkur, né heldur hve lengi hún var ráðherra. Ég man þó að hún var mótfallin utanvegaakstri),hlýtur að eiga einhverja bjarta framtíð fyrir sér. Nema hún hafi bara allt í einu uppgötvað að prestsfrú með tagl á þingi er bara ekki málið...
Gunnar bæjarstjóri hættur og Árni fjármálaráherra farinn í annað kjördæmi. Það hlýtur að vera kapphlaup í þriðja sæti og neðar á lista Sjálfstæðismanna í kraganum. Hver skyldi þá koma í staðin úr Mosfellsbæ? Er önnur kona búin að gefa kost á sér? Kannski frú Ragnheiður bæjarstjóri? Hvað er annars hægt að hafa margar spurningar í einni málsgrein?
Blaðið kom ekki morgun, ekki frekar en alla hina daga vikunnar. Síðasta vika var því merkisvika, því það var eina vikan sem Blaðið barst hér í hús og það á hverjum degi.
Athyglishæfni mín er ekki nægileg til að ég muni eftir því að sækja það sem ekki er ýtt að mér. Ekki nema ég borgi fyrir það sérstaklega, og því man ég eftir að hringja og skammast þegar ég fæ ekki moggann.
Nú er síðan búin að vera lifandi í viku. Nægir það til að kallast "bloggari"? Í næstu viku mun ég svo læra að hekla. Ef vel gengur er stefnt á sýningu í Gerðubergi.
Minni að lokum á Húmor að hausti. Góða atburði á ætíð að plögga.
Símon Birgisson er farinn að skrifa fyrir Sirkus. Það eru kannski bara gamlar fréttir sem ég hef ekki tekið eftir fyrr. Fyrir Sirkusblaðið í dag  skrifar Símon eitt það sorglegasta viðtal, sem ég hef lengi lesið, við "rokkstjörnuna" Ívar Örn Kolbeinsson. Nýlegum tónleikum á Akureyri lýsir Ívar svo "Fyrsta mega ferðalagið. Alvöru Road Trip. Fimmtán dópistar saman í rútu, grúppíur og massíf stemning."  Heldur svo áfram að tala um "tussurnar" og alvöru ástina; kókið.
Nú þekki ég ekki Ívar, og það getur vel verið að hann sé jafnmikill dóphaus og hann vill vera láta. Hluti af mér hafði þó á tilfinningunni að hann væri að draga upp ýkta mynd af sjálfum sér því hún passar svo vel við ímyndina af bandinu. Það er sorglegt.
Árni Johnsen var í kastljósinu að tilkynna framboð í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi. Hann ætlar sér ekkert lítið, 1.-2. sætið. Fer sem sagt í slaginn við Árna M.
Það virðist vera sem Vestmanneyjingar hafi fyrirgefi Árna misgjörðirnar, og þá á bara eftir að koma í ljós hvort aðrir í kjördæminu séu sama sinnis. Er það spennandi að fá Árna aftur á þing? Ah, held ekki.