15.10.2006 | 22:38
Týndi sonurinn snýr aftur
Heyrði um það pískrað að Sigurður G. Guðjónsson væri aftur á leið upp á Lyngháls. Nei, hann er víst ekki á leið aftur á Stöð 2, heldur á hann að vera búinn að leigja kjallarann fyrir fjölmiðlarekstur sinn.
Kjallari Lynghálsins hentar ágætlega þar sem þar var áður útvarpssvið Norðurljósa og hefur því fullbúin útvarpsstúdíó.
Þá á Oddi að vera búinn að fá nóg af Birtíng, eða því starfsfólki sem áður starfaði fyrir Fróða, og vill fá skrifstofupláss sitt aftur. Fyrrum Fróðafólkið mun því vera á leið upp á Lyngháls líka. Ef þetta gengur eftir mun Sigurður því vera komin heim og aldrei að vita nema hann taki Krókhálsinn yfir áður en langt um líður.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Oddamenn eiga ekkert í húsnæðinu sem Fróði var með í leigu, húsnæðið er í eigu Landsafls og það er varla mönnum bjóðandi að vinna í þessu húsi. Nýi Birtingur ætti að vera sáttur við Lynghálsinn enda gamalgróið fjölmiðlahús af bestu gerð.
helgi jón (IP-tala skráð) 24.10.2006 kl. 21:15
Oddamenn eiga ekkert í húsnæðinu sem Fróði var með í leigu, húsnæðið er í eigu Landsafls og það er varla mönnum bjóðandi að vinna í þessu húsi. Nýi Birtingur ætti að vera sáttur við Lynghálsinn enda gamalgróið fjölmiðlahús af bestu gerð.
helgi jón (IP-tala skráð) 24.10.2006 kl. 21:17
Hvað svo sem Oddamenn eiga eða mega, hafa skal það sem betur hljómar... í mínum eyrum ;)
Miðlar Lifandi, 26.10.2006 kl. 23:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.